Fotbolti.net
22.07.26 - 23:31
Brynjar Ingi Erluson

Chelsea og Liverpool boðið að fá varnarmann PSG

Ilya Zabarnyi í leik með PSG

Ilya Zabarnyi í leik með PSG

Canon

Mynd: EPA

Chelsea og Liverpool hefur boðist tækifærið á að fá úkraínska miðvörðinn Ilya Zabarnyi frá Evrópumeisturum Paris Saint-Germain.
Zabarnyi yfirgaf Bournemouth á síðasta ári og gekk til liðs við Paris Saint-Germain. Hann lék reglulega í frönsku deildinni en var í aukahlutverki í Meistaradeildinni.

Alls lék hann 28 deildarleiki og sjö leiki í Meistaradeildinni. Sex þeirra komu í deildarkeppninni en hann lék einnig síðustu fimmtán mínúturnar í úrslitaleiknum gegn Arsenal.

Samkvæmt Alex Crook hjá talkSPORT hefur bæði Chelsea og Liverpool boðist að fá varnarmanninn í sumar. Liverpool er sagt hafa rætt við umboðsmenn hans.

Andoni Iraola, stjóri Liverpool, þekkir vel til Zabarnyi eftir að hafa þjálfað hann hjá Bournemouth. Það sama á við um Richard Hughes, yfirmann fótboltamála hjá Liverpool, sem fékk Zabarnyi til Bournemouth frá Dynamo Kiev árið 2023.

Liverpool vill styrkja vörnina fyrir komandi tímabil en óvíst er hvort Chelsea hafi áhuga. Lundúnaliðið á í viðræðum við Crystal Palace um Maxence Lacroix og er þegar með sjö aðra miðverði í leikmannahópnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.