Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mið 23. september 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Alda og Elena semja við Aftureldingu
Kvenaboltinn
Alda Ólafsdóttir.
Alda Ólafsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þær Alda Ólafsdóttir og Elena Brynjarsdóttir hafa skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Aftureldingu, samningurinn rennur út undir lok árs 2022.

Alda hefur skorað fimm mörk í fjórtán leikjum í Lengjudeildinni í sumar og er markahæsti leikmaður liðsins. Alda hefur alls leikið 93 leiki í meistaraflokki í deild og bikar. Alda er fædd árið 1996 og Elena árið 1998.

Elena Brynjarsdóttir hefur staðið sig vel í sumar og er lykilmaður í uppspili Aftureldingar og leikur hún í hægri bakverði. Elena hefur leikið 75 leiki með Aftureldingu og skorað 20 mörk. Bæði Alda og Elena hafa leikið með yngri landsliðum Íslands.

„Afturelding fagnar því að Alda Ólafsdóttir og Elena Brynjarsdóttir hafi gert nýjan samning við félagið og taki slaginn í uppbyggingu liðsins í að búa til Pepsi deildar lið á komandi árum."
Athugasemdir
banner