Fotbolti.net
09.09.26 - 12:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Leiknum flýtt svo leikmenn geti mætt á bikarúrslitaleikinn

Völsungur spilar gegn HK á laugardaginn.

Völsungur spilar gegn HK á laugardaginn.

Canon

Mynd: Hrefna Morthens

Mjólkurbikarinn
Á laugardaginn fer fram lokaumferðin í Lengjudeild kvenna. Allir leikirnir voru settir á 14:00 sem er tveimur tímum fyrir bikarúrslitaleik kvenna, en þar mætast Þróttur og Grindavík/Njarðvík.

Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, birti færsli á Facebook í dag en þar vakti hann athygli á tímasetningu umferðarinnar í Lengjudeildinni og furðaði sig á því að umferðin væri spiluð ofan í bikarúrslitaleikinn.
Kallar eftir breytingum og vill fjölga liðum í Bestu deild kvenna
TENGT EFNI

Kallar eftir breytingum og vill fjölga liðum í Bestu deild kvenna

Jóhann Kristinn er Húsvíkingur og er búið að flýta leik HK og Völsungs í lokaumferð Lengjudeildarinnar. Sá leikur fer fram klukkan 13:00 og leikmenn fá tækifæri til að koma sér á Laugardalsvöll eftir leikinn sinn. Völsungur óskaði eftir breytingunni og HK og KSÍ samþykktu hana.

Þess má geta að í leikmannahópi Völsungs eru tveir leikmenn á láni frá Þrótti. Ljóst er að Völsungur endar í 9. sæti deildarinnar og fellur niður í 2. deild. HK er í 5. sæti og getur endaði í 3.-6. sæti deildarinnar.

laugardagur 12. september
Lengjudeild kvenna
13:00 HK-Völsungur (Kórinn)
14:00 Haukar-Tindastóll (BIRTU völlurinn)
14:00 Grótta-ÍA (Vivaldivöllurinn)
14:00 FHL-Selfoss (Fjarðabyggðarhöllin)
14:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)

Mjólkurbikar kvenna
16:00 Grindavík/Njarðvík-Þróttur R. (Laugardalsvöllur)
Leiknum flýtt svo leikmenn geti mætt á bikarúrslitaleikinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leiknum flýtt svo leikmenn geti mætt á bikarúrslitaleikinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeild kvenna

#LiðLmunStig
1Grótta18+2641
2KR18+2935
3Haukar18+1833
4HK18+1530
5Selfoss18+730
6FHL18+725
7ÍA18+524
8Keflavík18+521
9Völsungur18-1415
10Tindastóll18-983
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.