Fotbolti.net
23.10.26 - 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arnór Ingi: Auðvitað les maður fréttirnar og heyrir sögusagnir

Maður leiksins í síðasta leik.

Maður leiksins í síðasta leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV heimsækir KA í lokaumferð Bestu deildarinnar á morgun. Leikurinn hefst klukkan 14:00 á Greifavellinum.

Eyjamenn, sem keyra til Akureyrar í dag, hafa að litlu að keppa á morgun. Liðið mun enda í botnsæti Bestu deildarinnar en getur haft áhrif á það hvort að KA falli líka.

KA er í fallsæti fyrir umferðina og þarf að fá fleiri stig en Þór á morgun til að halda sæti sínu í deildinni. Þór mætir FH á sama tíma.
Stolt og það skiptir máli
Fótbolti.net ræddi við Arnór Inga Kristinsson sem er hægri bakvörður Eyjamanna.

„Leikurinn leggst nokkuð vel í okkur, við viljum enda tímabilið almennilega fyrir okkur og fólkið í kring. Við nálgumst hann eins og hvern annan leik. Það er stolt í þessu, við erum að spila fyrir ÍBV og það skiptir máli," segir Arnór Ingi.

Fengu kraft frá ungu Eyjamönnunum
Þið áttuð flottan leik hjá FH síðast og unnuð ykkar fyrsta sigur síðan í júlí, hver var lykillinn að því?

„Við vorum kannski meira afslappaðir í þessum leik og spiluðum með gleði, sem hefur kannski vantað undanfarið. Einnig fengu ungir ÍBV strákar fengu tækifæri sem gaf liðinu kraft."

Maður leiksins í síðasta leik
Arnór átti sjálfur mjög góðan leik gegn FH, skoraði og lagði upp og var valinn maður leiksins.

„Já, ég er hrikalega sáttur með leikinn, alltaf gaman að skora og leggja upp. Hlutverkið var svo sem svipað, ég fékk kannski aðeins meira frelsi sóknarlega í þessum leik þar sem við höfðum engu að tapa."

Framtíðin óljós
Í risastóra slúðurpakkanum kom nafn Arnórs Inga upp. Hann var orðaður við uppeldisfélagið Stjörnuna og hans fyrrum félag, Val. Arnór á ár eftir af samningi sínum við ÍBV.

Er ljóst að leikurinn á morgun verður þinn síðasti með ÍBV?

„Ég veit ekki hvað gerist, en auðvitað vill maður spila á eins háu leveli og hægt en það kemur í ljós eftir tímabilið."

Hvernig hafa þessi tvö ár í ÍBV verið?

„Tíminn hérna hingað til hefur verið góður, hef þróast mikið sem leikmaður og persóna."

Þú hefur verið orðaður við Val og Stjörnuna, hafa þau félög sett sig í samband við þig?

„Auðvitað les maður fréttirnar og heyrir sögusagnir en það væri þá eitthvað á milli klúbbana. Ég er bara einbeita mér að klára tímabilið vel svo sjáum við til með framtíðina," segir Arnór að lokum.
'Það er stolt í þessu, við erum að spila fyrir ÍBV og það skiptir máli'

'Það er stolt í þessu, við erum að spila fyrir ÍBV og það skiptir máli'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Unnu ekki leik í rúma þrjá mánuði.

Unnu ekki leik í rúma þrjá mánuði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyjamenn hafa spilað í gömlu Íslandsmeistaratreyjunum.

Eyjamenn hafa spilað í gömlu Íslandsmeistaratreyjunum.

Canon

Mynd: Lukasz Wróbel

Úr fyrri leik liðanna á Akureyri.

Úr fyrri leik liðanna á Akureyri.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.