23.10.26 - 14:35
Fótbolti.net
Góðgerðartreyja Víkings komin í sölu
Allur ágóði til Ingvars Jónssonar og fjölskyldu

Mynd: Víkingur

Mynd: Víkingur

Mynd: Víkingur
Vefsala á nýrri góðgerðartreyju Víkings hófst í gærkvöldi kl. 23:00 og viðtökurnar fóru fram úr björtustu vonum. Enn eru til treyjur í vefverslun Víkings en treyjan fer einnig í sölu í takmörkuðu upplagi í verslun 66°Norður í Faxafeni 12 í dag, föstudaginn 23. október, kl. 17:00.
Allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til Ingvars Jónssonar, markvarðar Víkings, og fjölskyldu hans. Ingvar greindist með krabbamein fyrr á árinu og heyr nú baráttu við það. Styrktaraðilar Víkings gáfu allir eftir pláss sitt á treyjunni til styrktar málefninu.
Treyjan er afrakstur samstarfs Víkings og 66°Norður sem hófst í byrjun árs. 66°Norður hannaði hana, Macron framleiddi og í henni leika Víkingar síðasta leik tímabilsins.
Saga frá 1921
Hönnunin segir sögu fyrsta Íslandsmeistaraliðs Víkings og fyrstu keppnisferðar félagsins árið 1921. Í undirbúningi fyrir Íslandsmótið sigldi liðið til Vestfjarða og lék þar æfingaleiki við Ísfirðinga. Aðeins nokkrum árum síðar var 66°Norður stofnað á sömu slóðum, og því eiga sögur Víkings og 66°Norður sér sameiginlegar rætur á Vestfjörðum frá upphafi síðustu aldar.
Mikill áhugi frá fyrstu mínútu
Víkingur býr að góðri reynslu frá árinu 2023, þegar félagið og Hildur Yeoman tóku höndum saman til styrktar fjölskyldu Svavars Péturs Eysteinssonar, Prins Póló. Stuttu fyrir opnun vefsölunnar í gærkvöldi var ljóst að áhuginn var heldur betur til staðar. Það tók vefinn um 20 mínútur að ná jafnvægi eftir fyrstu bylgjuna og pantanir streymdu inn alla nóttina og héldu áfram að hrannast inn í morgun.
Viðburður í Faxafeni í dag kl. 17:00
Þau sem náðu ekki í gegn í gær hafa tækifæri í dag til að styðja við þetta frábæra verkefni. Sokkar og stuttbuxur verða einnig til sölu og 20% afsláttur af vörum frá 66°Norður á meðan viðburðurinn stendur yfir.
Hvar fæst treyjan?
Vefverslun Víkings, til sölu núna: vikingur.is (19.900 kr.)
Verslun 66°Norður, Faxafeni 12, frá kl. 17:00 í dag