23.11.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Diego Simeone með flesta sigra frá upphafi

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Atlético Madrid hafði betur gegn Getafe er liðin mættust í La Liga í gærkvöldi og var það 345. sigur Diego Simeone sem þjálfari í deildinni.

TENGT EFNI
Spánn: Þægilegt fyrir Atlético - Tap hjá Orra
Simeone hefur stýrt Atlético Madrid síðustu fimmtán ár og hefur liðið á þeim tíma unnið 345 deildarleiki af 567 undir stjórn Simeone. Argentínumaðurinn er því með rétt rúmlega 60% sigurhlutfall.
Honum tókst því að bæta met Luis Aragonés sem vann 344 leiki í heildina við stjórnvölinn hjá átta mismunandi félagsliðum, þar á meðal Atlético Madrid og Barcelona.
Þetta er magnað afrek fyrir Simeone sem er 56 ára gamall og ber miklar taugar til Atlético eftir að hafa einnig spilað fyrir félagið í fimm ár á ferli sínum sem fótboltamaður.