Fotbolti.net
23.11.26 - 15:23
Elvar Geir Magnússon

Ekki vænlegt að fjölga liðum í Bestu deild karla

Það myndi þynna deildina að fjölga í fjórtán lið.

Það myndi þynna deildina að fjölga í fjórtán lið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Um helgina var kynning á vinnu spretthóps um framtíðarskipulag í Bestu deild karla. Niðurstaða hópsins er að best væri að halda áfram með 12 liða deild með skiptingu í efri og neðri hluta.

Skoða ætti þó möguleika á að bæta kerfið, til dæmis með niðurröðun heimaleikja og meiri hvata fyrir lið í neðri hlutanum.
Hópurinn skoðaði hvaða áhrif fjölgun í fjórtán lið myndu hafa en ýmsir hafa kallað eftir fjölgun. Í skýrslunni kemur fram að fjölgun myndi þynna deildina út, draga úr keppnisgildi og tekjum á hvert félag. Greiðslur UEFA og ÍTF á félag myndu lækka um 14,3%.

Fram kemur að Danmörk hafi fjölgað úr 12 í 14 lið í sinni deild en síðan farið aftur í 12 lið. Fulltrúar dönsku deildarsamtakanna lýstu minni áhuga áhorfenda og lægri tilboðum rétthafa í 14 liða kerfinu.

Rétthafar (Sýn og Genius) sjá ekki fram á aukið verðmæti réttinda með fjölgun og þá myndu dómgæsla og eftirlit kosta um 11 milljónum króna meira á ári samkvæmt KSÍ.

Hér má lesa skýrsluna í heild sinni
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.