„Sá strax síðasta vetur merki um breytingar á hans leik"

Verður í treyju númer tíu hjá Breiðabliki.

Mynd: Breiðablik

Kemur frá Keflavík.

Mynd: Breiðablik

Hann er búinn að vera með samningstilboð frá Breiðabliki í langan tíma.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hlynur Freyr líka orðaður við Val og ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Benedikt Waren er orðaður við Breiðablik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Yeoman er leikjahæsti leikmaður í sögu Breiðabliks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Verður í treyju númer tíu hjá Breiðabliki.

Mynd: Breiðablik
Fótbolti.net ræddi við Jökul Elísabetarson, þjálfara Breiðabliks, um nýja leikmanninn og ýmislegt annað.
„Frábært, ég hef auðvitað fylgst með honum lengi og maður sá strax síðasta vetur merki um breytingar á hans leik og hvernig hann bar sig inni í sínu liði og í kringum völlinn. Mér fannst annar bragur yfir honum, meiri ró og hann búinn að þroskast mikið. Mér fannst spila meira fyrir liðið og niðurstaðan varð svo að hann skoraði mikið af mörkum. Mér finnst þetta frábær tímapunktur til að fá hann og líka fyrir hann að taka skref. Ég bind vonir við að hann falli vel inn í hópinn," segir Jökull.
Stefan skoraði tólf mörk í Bestu deildinni á liðnu tímabili sem var hans besta á ferlinum til þessa.
Framherjastaðan gæti verið klár
Ef horft er í stöðu fremsta manns á vellinum, ertu í góðum málum þar? Kristófer Ingi Kristinsson er með lausan samning og það hefur verið slúðrað um að Þorleifur Úlfarsson gæti farið aftur út. Er eitthvað sem þú getur sagt í þessum efnum?
„Það er voða lítið sem ég get sagt. Kristófer er að renna út á samningi, hann er að hugsa sín mál. Hann er búinn að vera með samningstilboð frá Breiðabliki í langan tíma. Ég veit að hann dreymir um að fá spennandi tilboð erlendis frá. Ef það verður ekki, þá verður það bara skoðað."
„Dolli hefur auðvitað sterka tengingu til Bandaríkjanna en ég veit líka að hann er mjög peppaður að taka slaginn áfram hér. En maður veit ekki hvað gerist, það gæti eitthvað breyst en það gæti líka verið þannig að framherjastaðan sé klár."
Það er þá ekki þannig að þið eruð að semja við Stefan núna af því að þið vitið eitthvað meira varðandi stöðu annarra?
„Nei, það er ekki þannig. Stefan er spennandi leikmaður og flottur karakter, við vildum taka hann inn. Ég veit ekki hvort við hefðum gert það ef Kristó hefði verið búinn að skrifa undir. Ég held það sé ekki góð staða að vera með þrjá sentera nema þú ætlir að spila með fleiri en einn. Stefan er öflugur senter og spennandi."
Er eitthvað að frétta varðandi þitt þjálfarateymi?
„Það er eitthvað farið að skýrast en ekkert sem ég get gefið upp akkúrat núna, það er eitthvað ennþá í vinnslu."
Vill halda Hlyni í Smáranum ef hann spilar á Íslandi
Það heyrist að fleiri félög, Valur bauð í hann og slúðrað um áhuga Í, horfi í Hlyn Frey Karlsson. Er eitthvað samtal við Brommapojkarna sem þú getur sagt frá?
„Ekkert meira en hefur komið fram. Hann er þeirra leikmaður, hann er metnaðarfullur ungur maður. Ég held það sé öruggt að hann dreymir líka um að fara aftur út. Við sjáum bara til. Hann verður með okkur út fram að áramótum og svo fer hann út, lætur reyna á það og staðan skoðuð í framhaldinu. Auðvitað er alveg ljóst að ef að hann verður heima, þá viljum við hafa hann hér."

Benedikt sagður ósáttur og með 20 milljóna verðmiða
Samtal milli félaganna
Tveir leikmenn hjá Stjörnunni, þínu gamla félagi, hafa verið orðaðir við Breiðablik. Það eru þeir Benedikt Warén og Daníel Finns Matthíasson. Hafið þið kannað möguleikann á því að fá annan hvorn eða báða?
„Það hefur átt sér samtal á milli félaganna um báða og annað farið lengra," segir Jökull og vildi ekki tjá sig frekar um það.
Fær ekki leyfi til að hætta
Þú tjáðir þig um Andra Rafn Yeoman eftir að þú tókst við sem þjálfari Breiðabliks. Hann hefur glímt við meiðsli síðustu mánuði, brjósklos, hvernig er hljóðið í honum?
„Ég er búinn að spjalla við hann og hann fær ekkert leyfi til að hætta í fótbolta núna, hann getur gert það seinna. Hann þarf aðeins að skoða skrokkinn, en eins og ég sagði síðast bind ég miklar vonir við að hann verði áfram. Hann er ekkert eðlilega mikilvægur fyrir þetta lið. Mín skoðun þar mun ekkert breytast," segir Jökull.

Alltaf planið að koma aftur - „Þetta lið þarf á honum að halda"

Kemur frá Keflavík.

Mynd: Breiðablik

Hann er búinn að vera með samningstilboð frá Breiðabliki í langan tíma.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hlynur Freyr líka orðaður við Val og ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Benedikt Waren er orðaður við Breiðablik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Yeoman er leikjahæsti leikmaður í sögu Breiðabliks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
