Fotbolti.net
23.11.26 - 14:23
Elvar Geir Magnússon

Arteta um meiðsli Raya: Óttuðumst að þetta væri mun verra

David Raya.

David Raya.

Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta stjóri Arsenal hefur staðfest að markvörðurinn David Raya verði ekki klár fyrir Meistaradeildarleik Arsenal gegn Borussia Dortmund á morgun en segir að meiðslin líti ekki út fyrir að vera alvarleg.

Spænski markvörðurinn fór af velli vegna meiðsla á öxl í seinni hálfleik í 2-2 jafntefli gegn Newcastle á laugardaginn og Kepa Arrizabalaga kom inn fyrir hann.

Raya æfði ekki með Arsenal í dag en Kepa og Illan Meslier æfðu og er búist við að sá fyrrnefndi byrji gegn Dortmund.
Meistararnir misstu eina ómissandi leikmanninn
TENGT EFNI

Meistararnir misstu eina ómissandi leikmanninn

„Við óttuðumst eitthvað miklu verra því hann fann mikinn sársauka. Fyrsta skoðun lítur þó betur út en við þorðum að vona. Hann þarf ekki að fara í aðgerð. Hann verður skoðaður betur og á morgun getum við gefið ykkur nákvæmari upplýsingar," segir Arteta.

Arteta gat ekkert sagt til um það hvort Raya ætti möguleika á að vera í marki Arsenal á sunnudaginn, þegar liðið mætir Manchester City í sannkölluðum stórleik.

Kepa lél síðustu 20 mínúturnar gegn Newcastle en hann hefur aðeins byrjað einn lei á tímabilinu, hann hóf 4-2 sigur á Ipswich í þriðju umferð deildabikarsins í lok september.
Kepa Arrizabalaga.

Kepa Arrizabalaga.

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.