Fotbolti.net
23.11.26 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ekki útilokað að Andri Rúnar verði áfram í Stjörnunni

Ekki útilokað að Andri Rúnar verði áfram í Stjörnunni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Rúnar Bjarnason er með lausan samning eftir tvö tímabil í Stjörnunni.

Markaskorarinn, sem varð 36 ára fyrr í þessum mánuði, var á dögunum orðaður við Fylki í Dr. Football.

Stjarnan hefur ekkert gefið út varðandi framtíð Andra og virðist enn möguleiki á því að hann verði áfram hjá félaginu.
„Nei, það er ekki orðið 100% ljóst. Það er svolítið undir honum komið hvort hann hafi áhuga á því að vera áfram. Það er ekki búið að koma með samning á borðið, en við höfum átt samtal," segir Viktor Bjarki Arnarsson við Fótbolta.net en hann er yfirmaður fótboltamála hjá Stjörnunni.

Andri skoraði sjö mörk og lagði upp eitt í sex byrjunarliðsleikjum á tímabilinu. Alls kom hann við sögu í 22 deildarleikjum og lék 817 mínútur.

Árið 2017 kom hann sér í 19 marka klúbbinn þegar hann átti frábært tímabil með Grindavík. Í kjölfarið hélt hann út í atvinnumennsku og lék erlendis með Helsinborg, Kaiserslautern og Esbjerg. Tímabilið 2022 lék hann svo með ÍBV, Val 2023 og Vestra 2024.

Í fyrra, 2025, skoraði hann tólf mörk í Bestu deildinni og byrjaði þá 19 leiki.

Stjarnan fékk á dögunum framherjann Bergvin Fannar Helgason frá ÍR og Árni Vilhjálmsson kom til félagsins í sumarglugganum.
Ekki útilokað að Andri Rúnar verði áfram í Stjörnunni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.