Fótbolti.net mun tólfta árið í röð standa fyrir æfingamóti í janúar og febrúar þar sem sterkustu lið landsins taka þátt. Sjö félög úr Pepsi Max-deildinni eru í A-deildinni að þessu sinni sem og HK sem féllu úr deildinni í haust.
Líkt og vanalega er liðunum skipt niður í tvo riðla og í kjölfarið er leikið um sæti þar sem efstu liðin í hvorum riðli mætast í úrslitum og svo framvegis. Félag deildardómara mun síðan sjá um dómgæslu á mótinu líkt og áður.
Hér að neðan má sjá riðlaskiptingu í A-deild Fótbolta.net mótsins 2022 sem og leikjaniðurröðun. Mótið hefst með krafti laugardaginn 8. janúar en þá fara fjórir leikir fram.
Riðlaskipting í B-deild Fótbolta.net mótsins kom líka í dag en í C-deildinni á næstu viku. Smelltu hér til að sjá B-deildina
A-riðill
Breiðablik
Leiknir
Keflavík
HK
B-riðill
FH
Stjarnan
ÍA
ÍBV
Laugardagur 8. janúar:
12:00 FH - ÍBV (Skessan) FRESTAÐ
11:30 HK - Leiknir (Kórinn)
12:00 ÍA - Stjarnan (Akraneshöllin)
13:00 Breiðablik - Keflavík (Kópavogsvöllur)
Föstudagur 14 janúar:
18:00 Leiknir - Breiðablik (Leiknisvöllur)
Laugardagur 15. janúar:
12:00 FH - ÍA (Skessan)
13:30 Stjarnan - ÍBV (Samsungvöllurinn)
Þriðjudagur 18. janúar:
18:45 HK - Keflavík (Kórinn)
Laugardagur 22. janúar:
12:00 ÍA - ÍBV (Akraneshöllin) FRESTAÐ
13:00 Keflavík - Leiknir (Reykjaneshöllin)
13:00 Breiðablik - HK (Kórinn)
Mánudagur 24. janúar:
19:00 Stjarnan - FH (Samsungvöllurinn)
Laugardagur 29. janúar:
LEIKIÐ UM SÆTI
Sigurvegarar Fótbolta.net mótsins frá upphafi:
2011: Keflavík
2012: Breiðablik
2013: Breiðablik
2014: Stjarnan
2015: Breiðablik
2016: ÍBV
2017: FH
2018: Stjarnan
2019: Breiðablik
2020: ÍA
2021: Breiðablik
Athugasemdir