Það eru tveir leikir sem hefjast samtímis í enska FA bikarnum í dag þegar Fulham tekur á móti Burnley og Leicester heimsækir Brentford.
Öll liðin mæta til leiks með sterk byrjunarlið og byrjar Jóhann Berg Guðmundsson á kantinum hjá Burnley.
Dwight McNeil byrjar á hinum kantinum en Ashley Barnes og Chris Wood eru hvíldir. Jay Rodriguez og Matej Vydra taka stöður þeirra í fremstu víglínu.
Brendan Rodgers breytir nokkuð til í byrjunarliði Leicester en þar má finna Tyrkinn knáa Cengiz Ünder ásamt Harvey Barnes og James Maddison.
Jamie Vardy er fjarverandi vegna meiðsla.
Fulham: Rodak, Hector, Adarabioyo, Onomah, Anguissa, Bryan, Lemina, DeCordova-Reid, Ream, Mitrovic, Kamara
Burnley: Peacock-Farrell, Bardsley, Tarkowski, Long, Pieters, Guðmundsson, Cork, Stephens, McNeil, Rodriguez, Vydra
Brentford: Daniels, Roerslev, Pinnock, Sörensen, Stevens, Janelt, Zamburek, Ghoddos, Fosu, Canos, Forss
Leicester: Ward, R.Pereira, Soyuncu, Amartey, Thomas, Mendy, Tielemans, Ünder, Maddison, Barnes, Perez
Athugasemdir