Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   sun 24. janúar 2021 07:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gladbach kaupir franskan unglingalandsliðsmann (Staðfest)
Mynd: Gladbach
Borussia Mönchengladbach hefur fest kaup á franska unglingalandsliðsmanninum Kouadio Koné hjá Toulouse.

Gladbach ákvað að lána Koné aftur til Toulouse út yfirstandandi tímabil.

Koné er nítján ára miðjumaður sem á ættir að rekja til Fílabeinsstrandarinnar.

Gladbach greiðir rúmar átta milljónir punda fyrir leikmanninn.

„Það er klárt að hér get ég haldið áfram að þróa leik minn," sagði Koné við undirskrift.
Athugasemdir
banner