Bayern Munchen spilar við Schalke í þýska boltanum í dag en leikurinn fer af stað 14:30 á íslenskum tíma.
Schalke hefur ekkert getað á þessu tímabili og er í botnsætinu með aðeins sjö stig eftir fyrstu 17 umferðirnar.
Það er því auðvelt að spá fyrir sigri Bayern sem soitur á toppnum fyrir leikinn og hefur aðeins tapað tveimur viðureignum til þessa.
Klukkan 17:00 hefst svo leikur Hoffenheim og Köln en þar ar leikið á heimavelli þess fyrrnefnda.
Hoffenheim er fyrir leikinn í 11. sæti deildarinnar en Köln í fallsæti með aðeins 15 stig.
Þýska Bundesligan:
14:30 Schalke - Bayern Munchen
17:00 Hoffenheim - FC Köln
Athugasemdir