Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 24. febrúar 2021 14:00
Magnús Már Einarsson
Sömu meiddir hjá Man Utd - Diallo og Shoretire í hóp
Shola Shoretire
Shola Shoretire
Mynd: Getty Images
Manchester United mætir Real Sociedad í síðari leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar annað kvöld. United er í mjög vænlegri stöðu eftir 4-0 sigur í fyrr í leiknum.

Edinson Cavani, Donny van de Beek og Scott McTominay eru allir fjarri góðu gamni líkt og gegn Newcastle um síðustu helgi.

Hinn 17 ára gamli Shola Shoretire spilaði sinn fyrsta leik gegn Newcastle um síðustu helgi og líklegt er að hann spili líkt og hinn 18 ára gamli Amad Diallo sem kom frá Atalanta í janúar.

„Amad og Shola koma við sögu, þeir eru í hópnum. Ég vil ekki segja hvort þeir byrja eða ekki," sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United á fréttamannafundi í dag.
Athugasemdir
banner