Fotbolti.net
24.02.24 - 16:37
Aksentije Milisic

Byrjunarlið Bournemouth og Man City: Þrjár breytingar hjá Pep - De Bruyne á bekknum

Byrjunarlið Bournemouth og Man City: Þrjár breytingar hjá Pep - De Bruyne á bekknum
Canon

Mynd: EPA

Klukkan 17:30 hefst leikur Bournemouth og Manchester City og fer hann fram á Vitality leikvangnum í Bournemouth.

Englandsmeistararnir eru í öðru sæti deildarinnar en með sigri í dag getur liðið minnkað forskot Liverpool í eitt stig á toppnum. Heimamenn í Bournemouth eru í þrettánda sætinu með 28 stig.

Það er ein breyting á liði Bournemouth frá jafnteflisleiknum gegn Newcastle en Milos Kerkez kemur inn fyrir Lloyd Kelly, sem er ekki í hópnum í dag.

Pep Guardiola, stjóri Man City, gerir þrjár breytingar í liði gestanna. Nathan Ake, Matheus Nunes og Mateo Kovacic koma inn fyrir þá Kyle Walker, Julian Alvarez og Oscar Bobb.

Kevin de Bruyne er á bekknum.

Bournemouth: Neto, Zabarnyi, Senesi, Smith, Kerkez, Kluivert, Christie, Semenyo, Tavernier, Cook, Solanke
(Varamenn: Faivre, Ouattara, Mepham, Travers, Scott, Sinisterra, Kinsey-Wellings, Ünal, Radu)

Manchester City: Ederson, Akanji, Stones, Dias, Ake, Rodrigo, Nunes, Kovacic, Bernardo, Foden, Haaland
(Varamenn: Ortega Moreno, Walker, Grealish, Doku, De Bruyne, Gomez, Bobb, Lewis)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.