Fotbolti.net
09.10.26 - 19:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þurfa að fara varlega með Rice

Þurfa að fara varlega með Rice
Canon

Mynd: EPA

Það eru meiðslavandræði í herbúðum Arsenal en Christos Tzolis, Kai Havertz, Ezri Konsa og Declan Rice þurftu að draga sig úr landsliðshópum sínum vegna meiðsla.

Mikel Arteta staðfesti að Tzolis verði frá næstu vikurnar eftir að hafa meiðst aftan í læri í leik með Grikklandi. Þá sagði hann að Havertz, Konza og Rice væru tæpir fyrir leikinn gegn Leeds á morgun.
„Við þurfum að fara varlega með Rice. Hann hefur átt við nokkur vandamál að stríða eftir HM. Við vitum hvað hann er búinn að spila marga leiki síðustu þrjú ár, þetta var það skynsamlega í stöðunni. Vonandi verður hann klár og nokkrir aðrir sem hafa verið tæpir," sagði Arteta.

Max Dowman meiddist með U19 landsliði Englands en er klár í slaginn. Þá eru Cristhian Mosquera, Ben White og Piero Hincapie einnig klárir en þeir voru í meiðslavandræðum fyrir landsleikjahléið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.