09.10.26 - 19:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Karólína: Virðist vera í tísku
Skrifar frá Pula í Króatíu
Auglýsing

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Við vissum að þetta yrði erfiður völlur og svona lið geta verið erfið að spila á móti. Mér fannst við gera vel að skora fjögur á útivelli," sagði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmaður Íslands, eftir 0-4 sigur gegn Króatíu í umspili um sæti á HM í kvöld.
Þetta var fyrri leikur liðanna en hann endaði með þægilegum sigri okkar Íslendinga.

Lestu um leikinn: Króatía 0 - 4 Ísland
„Það er erfitt að spila á móti svona Balkanliði, sérstaklega á útivelli. Völlurinn var mjög þurr og þær neituðu að vökva hann. Þetta var mjög mikilvægt."
„Þær eru slakari en við og þær þurftu að spila smá 'dirty'. Ég ber bara virðingu fyrir því."
Króatarnir reyndu líka að sparka upp vítapunktinn eftir að Ísland fékk víti í síðari hálfleik.
„Já, það virðist vera í tísku. Við erum alltaf að lenda í þessu á Ítalíu og ég er orðin vön þessu. Maður þarf að verja vítapunktinn með lífi sínu," sagði Karólína og hló.
Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.