Fotbolti.net
09.10.26 - 20:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ekkert venjulegar tölur frá miðverði - „Skoða hitt hornið næst"

Skrifar frá Pula í Króatíu

Auglýsing
Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði.

Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Eimskip
„Ég er gríðarlega ánægð með þennan sigur og gott að ná inn fjórum mörkum," sagði Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði, eftir 4-0 sigur gegn Króatíu í fyrri leik í umspili um sæti á HM.
Lestu um leikinn: Króatía 0 - 4 Ísland
Glódís skoraði eitt mark af vítapunktinum og bætti við tveimur stoðsendingum. Þetta eru ekki venjulegar tölur fyrir miðvörð.

„Nei, en við erum með svo frábæra spyrnumenn og svo er Arna (Eiríksdóttir) geggjuð á fjær. Það er gott að geta komið með eitthvað til liðsins."

Arna Eiríksdóttir skoraði tvisvar, bæði eftir stoðsendingar frá Glódísi.

„Frábær mörk bæði, áræðni í henni inn í teignum. Hún ætlar sér bara að skora og það er akkúrat það sem við þurfum í svona leikjum," sagði Glódís og hrósaði Örnu enn frekar.

Glódís skoraði mark sitt úr vítaspyrnu. „Þetta var ekkert góð spyrna held ég," sagði Glódís og hló. „Ég þarf kannski að skoða hitt hornið næst."

Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.