Fotbolti.net
09.10.26 - 22:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sigur hjá Elísabetu - Líklegir andstæðingar Íslands með öruggan sigur

Sigur hjá Elísabetu - Líklegir andstæðingar Íslands með öruggan sigur
Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn
Belgía fékk Pólland í heimsókn í umspili um sæti á HM í kvöld. Belginn Tessa Wullaert mistókst að koma Belgíu yfir þegar vítaspyrnan hennar fór forgörðum.

Hún bætti upp fyrir það þegar hún lagði upp mark á Elena Dhont í blálok fyrri hálfleiks.
Pólland fékk vítaspyrnu eftir tæplega klukkutíma leik en Ewa Pajor klikkaði og 1-0 sigur Belgíu var staðreynd. Liðin mætast aftur í Póllandi á þriðjudaginn. Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari Belgíu.

Ísland vann öruggan sigur á Króatíu í fyrri leik liðanna ytra í kvöld. Liðið mætir annað hvort Portúgal eða Norður-Írlandi ef liðinu tekst að klára verkefnið á Laugardalsvelli á þriðjudaginn.

Portúgal verður líklega mótherji Íslands þar sem liðið vann 4-0 sigur á Norður-Írlandi ytra í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.