Fotbolti.net
10.10.26 - 09:20
Elvar Geir Magnússon

Sævar Péturs og Lúlli Gunn gestir á X977 í dag

Sævar Péturs og Lúlli Gunn gestir á X977 í dag
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður í beinni á X977 í dag milli 12 og 14, eins og venjan er á laugardögum.

Smelltu hér til að hlusta á X977 í beinni

Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar þar sem agabrot innan íslenska landsliðsins kemur við sögu. Farið er yfir gömul agabrot innan landsliðsins. Besta deildin fer aftur af stað og rýnt er í slúðrið.

Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA kemur í heimsókn og ræðir um sínar pælingar varðandi umræðuna um að breyta fyrirkomulagi Bestu deildarinnar.

Þá mætir Lúðvík Gunnarsson, þjálfari U21 landsliðsins, en liðið er einu einvígi gegn Grikklandi frá því að komast á EM.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X977 alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X977 á netinu með því að smella hérna
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.