Fotbolti.net
09.10.26 - 18:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ísland vann öruggan sigur í Króatíu

Systurnar frábærar

Ísland vann öruggan sigur í Króatíu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Króatía 0 - 4 Ísland
0-1 Arna Eiríksdóttir ('13 )
0-2 Glódís Perla Viggósdóttir ('67 , víti)
0-3 Hlín Eiríksdóttir ('75 )
0-4 Arna Eiríksdóttir ('95 )
Lestu um leikinn
Ísland heimsótti Króatíu í fyrri leik liðanna í umspili fyrir HM. Ísland vann öruggan sigur.

Ísland náði forystunni eftir tæplega stundafjórðung. Markið kom eftir langt innkast frá Sveindísi Jane Jónsdóttur. Glódís Perla Viggósdóttir skallaði boltann áfram á Örnu Eiríksdóttur sem stýrði boltanum í netið.

Stuttu síðar kom aftur hætta eftir langt innkast en Alexandra Jóhannsdóttir skallaði boltann framhjá.

Íslenska liðið var með öll völd á vellinum og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var hársbreidd frá því að bæta við marki undir lok fyrri hálfleiks en boltinn fór í stöngina.

Ísland fékk vítaspyrnu eftir rúmlega klukkutíma leik þegar boltinn fór í höndina á varnamanni. Fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir steig á punktinn og bætti öðru markinu við.

Hlín Eiríksdóttir skoraði svo þriðja markið eftir góðan undirbúning frá Emilíu Kiær Ásgeirsdóttir.

Króatíska liðið var nálægt því að klóra í bakkann undir lokin. Ana Maria Markovic slapp í gegn og Cecilía Rán Rúnarsdóttir kom á móti. Markovic komst framhjá henni en Glódís mætti á síðustu stundu og bjargaði frábærlega.

Arna innsiglaði sigur Íslands í uppbótatíma þegar hún skoraði af miklu harðfygli. Seinni leikur liðanna fer fram á Laugardalsvelli á þriðjudaginn 13. október.
Ísland vann öruggan sigur í Króatíu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.