09.10.26 - 20:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sveindís: Fann smá brak en það var gott brak
Skrifar frá Pula í Króatíu
Auglýsing

Sveindís Jane Jónsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Það er gott að fara með þetta heim," sagði Sveindís Jane Jónsdóttir, leikmaður Íslands, eftir 4-0 sigur gegn Króatíu í fyrri leik liðanna í umspili um sæti á HM í dag.
Lestu um leikinn: Króatía 0 - 4 Ísland
Íslenska liðið er talsvert betra en Króatía og það sást í dag.
„Já, við erum mikið betri. Ég held að við höfum sýnt það allan leikinn. Það voru örugglega 20 sekúndur samtals þar sem við vorum ekki alveg 'on'. Við erum mikið betra lið," sagði Sveindís.
Sveindís lenti á öxlinni í seinni hálfleik og það leit ekki vel út, en sem betur fer fór það ekki illa.
„Það er allt í góðu, ég var bara smá stressuð því ég hef meitt mig nokkrum sinnum á öxlinni. Ég fann smá brak en það var bara gott brak. Ég var smá stressuð, en þetta var ekki neitt," sagði hún.
Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.