Fotbolti.net
09.10.26 - 23:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Með mjög mikið keppnisskap og vill að það sé dæmt rétt"

„Með mjög mikið keppnisskap og vill að það sé dæmt rétt"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH getur gulltryggt sér áframhaldandi veru í Bestu deildinni þegar liðið heimsækir Val á morgun. Liðið er sex stigum frá fallsæti þegar þrjár umferðir eru eftir.

Tómas Orri Róbertsson, leikmaður FH, ræddi við Fótbolta.net um tímabilið.
„Þetta er búið að vera smá upp og niður. Við byrjuðum brösuglega en núna upp á síðkastið, seinni umferðin og núna inn í úrslitakeppnina, er búinn að vera stígandi í leiknum hjá okkur. Ég er ánægður með alla í liðinu og hvernig við erum búnir að snúa þessu við. Og sérstaklega líka núna að horfa í frammistöðurnar, tvær góðar frammistöður í úrslitakeppninni og við vonumst til þess að byggja á það á morgun á móti Val," sagði Tómas.

Var eitthvað stress eftir hæga byrjun?

„Já og nei. Þetta er alltaf í undirmeðvitundinni en samt ertu ekkert að pæla of mikið, þú ert bara að fara í næsta leik og reyna að taka þrjú stig í hverjum einasta leik. Ég vil ekki segja nei en jú, svona aðeins kannski inn á milli."

Tómas hefur verið duglegur að næla sér í spjöld í sumar en hann hefur fengið níu gul spjöld.

„Já, ég er kominn með nú slatta núna. Maður reynir alltaf að vinna í því en stundum þarf maður bara að taka brotið fyrst maður er að spila á miðjum vellinum og stoppa sóknir. Vonandi getur maður minnkað spjaldafjöldann."

Er keppnisskapið líka svona spilað inn í?

„Já, ætli það ekki. Maður er náttúrulega mjög mikið keppnisskap og vill að það sé dæmt rétt og svona þannig að kannski spilar eitthvað hlutverk.

Er Jói Kalli eitthvað að segja þér til?

„Nei, í rauninni ekki. Ekki svona óþarfa brot og eitthvað svoleiðis. Ég veit ekki hvort að hann var eitthvað spjaldaglaður á sínum tíma sjálfur, ég veit það ekki. Í rauninni er hann ekkert að segja mér til. Bara passa þessi óþarfa brot."

Ertu ánægður með eigið tímabil?

„Já, mér finnst ég búinn að vera rokksolid í mínum frammistöðum og maður er alltaf að reyna að bæta sig frá hverjum leik. En fyrst og fremst er liðið búið að þjappa sér saman, eins og ég sagði, í seinni umferðinni og það er bara búið að vera stígandi í öllu liðinu einhvern veginn. Það eru allir að leggja inn í púkkið og standa sig vel."
„Með mjög mikið keppnisskap og vill að það sé dæmt rétt"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Með mjög mikið keppnisskap og vill að það sé dæmt rétt"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Með mjög mikið keppnisskap og vill að það sé dæmt rétt"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Strákarnir á leið í umspilið - „Geggjað að sjá hvað það var góð og sterk liðsheild"

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.