09.10.26 - 20:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Las viðtölin og vissi þá hvað Króatar óttuðust
Skrifar frá Pula í Króatíu
Auglýsing

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arna og Hlín voru frábærar í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Ég held að það sé ágætis orð yfir það," sagði Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, spurður að því hvort þetta hefði ekki bara verið fagmannlega gert hjá stelpunum okkar í kvöld. Þær unnu 0-4 sigur á Króatíu í Pula og taka það með sér heim til Íslands. Þetta var fyrri leikurinn í umspili um sæti á HM.
Lestu um leikinn: Króatía 0 - 4 Ísland
„Við gerðum þetta virkilega vel heilt yfir. Það var smá kafli í seinni hálfleik þar sem við vorum að rembast of mikið. Svo kom aðeins meiri ró yfir okkur og þá fór þetta að tikka aftur."
Arna Eiríksdóttir kom inn í liðið, spilaði í hægri bakverði og skoraði tvö mörk. Kom það á óvart hversu vel hún skilaði þessu?
„Nei, alls ekki. Það er ástæðan fyrir því að hún er þarna. Ég treysti henni til þess og tel að hún geti skilað þessu vel. Auðvitað er hún líka gríðarlega sterk í föstum leikatriðum og við vissum það, við höfum séð það í mörg ár. Hún er hættuleg þar og góður skallamaður. Það var ánægjulegt að sjá að hún nýtti það líka vel. Það er flott fyrir hana að fá svona frammistöðu í svona leik," sagði Steini.
Ísland nýtti föstu leikatriðin sín mjög vel í leiknum.
„Við vorum búin að fara vel yfir þau þannig að við yrðum sterkari en þær inn í teig. Mér fannst við sýna það vel í dag. Maður las viðtöl við þjálfara og fyrirliða og þá sá maður að þau töluðu mikið um föst leikatriði. Við vissum því að þær óttuðust þetta og þegar þú óttast eitthvað svona mikið og talar mikið um það, þá veit maður að fólk telur þetta vera veikleika hjá sér."
Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.