Man Utd gæti keypt McTominay til baka - Man Utd hrifið af Sangare - Real Madrid með augun á Van de Ven
   þri 24. febrúar 2026 18:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sara Björk heim í Hauka og Árni í Breiðablik?
Kvenaboltinn
Sara Björk Gunnarsdóttir.
Sara Björk Gunnarsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rætt hefur verið um það í hlaðvarpsþáttum undanfarið að fótboltaparið Sara Björk Gunnarsdóttir og Árni Vilhjálmsson séu á heimleið.

Í Þungavigtinni sagði Kristján Óli Sigurðsson að Sara Björk, sem var landsliðsfyrirliði lengi og er leikjahæsta landsliðskona Íslandssögunnar, væri á leið heim í Hauka sem spila í Lengjudeildinni.

„Hún ætlar að rífa upp Haukana aftur," sagði Kristján Óli.

Snert var líka á þessu í Dr Football í dag og þar var Árni orðaður við Breiðablik.

Árni er uppalinn í Breiðabliki og Sara er uppalin hjá Haukum. Sara spilaði þá með Blikum áður en hún fór í atvinnumennsku.

Sara fór til Sádi-Arabíu 2024 og gekk í raðir Al Qadsiah. Þar áður spilaði hún með nokkrum af sterkustu félagsliðum Evrópu og vann til að mynda Meistaradeildina í tvígang með Lyon. Árni hefur komið víða við á sínum ferli en leikur núna í neðri deildunum í Sádi-Arabíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner