Helena Errington er gengin í raðir FH en hún kemur á láni út tímabilið í Bestu deildinni. Hún er sókarsinnaður miðjumaður sem spilar með Sporting Club Jacksonville í bandarísku USL deildinni.
Hún er fædd árið 2005 og var hjá Sporting í Portúgal og Wellington Phoenix í heimalandinu áður en hún hélt til Bandaríkjanna. Hún á að baki níu leiki og tvö mörk fyrir yngri landslið Nýja-Sjálands samkvæmt Wikipedia.
„Helena er sóknarsinnaður miðjumaður frá Nýja Sjálandi sem kemur til okkar á láni út tímabilið frá Sporting Club Jacksonville sem spilar í USL deildinni í Bandaríkjunum. Hún er tæknilega góð, les leikinn vel og líður vel á boltanum," sagði Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, við FH media.
Helena er annar leimaðurinn sem FH tilkynnir í dag því Nia Christopher var kynnt fyrir hádegi.

Komnar
Mackenzie Smtih frá Fram
Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir frá Haukum
Nia Christopher frá Bandaríkjunum
Helena Errington frá Bandaríkjunum á láni
Farnar
Thelma Karen Pálmadóttir í Häcken
Arna Eiríksdóttir í Vålerenga
Elísa Lana Sigurjónsdóttir til Kristianstad
Maya Hansen
Macy Elizabeth Enneking
Margrét Brynja Kristinsdóttir í Val
Valgerður Ósk Valsdóttir í Hauka
Harpa Helgadóttir í Fram (lán)
Athugasemdir