„Hæ allir. Því miður er dagurinn kominn," segir Mohamed Salah sem mun kveðja Liverpool eftir tímabilið. Hann hefur komið að samkomulagi við félagið um að þetta verði hans síðasta leiktíð með Liverpool.
Salah gaf út myndband á samfélagsmiðlum sínum eftir að þetta var allt saman tilkynnt í kvöld. Myndbandið er frekar tilfinningaþrungið enda er goðsögn að kveðja Liverpool.
Salah gaf út myndband á samfélagsmiðlum sínum eftir að þetta var allt saman tilkynnt í kvöld. Myndbandið er frekar tilfinningaþrungið enda er goðsögn að kveðja Liverpool.
„Ég mun yfirgefa Liverpool eftir tímabilið. Ég vil byrja á því að segja að ég gat ekki ímyndað mér hversu djúpstæð áhrif þetta félag, þessi borg og þetta fólk myndi hafa á líf mitt. Liverpool er ekki bara fótboltafélag; það er ástríða, það er saga og það er andi."
„Við fögnuðum sigrum. Við unnum mikilvægustu titlana. Við börðumst saman í gegnum erfiðasta tímann í lífi okkar. Ég vil þakka öllum sem voru hluti af félaginu á meðan ég var hérna sérstaklega öllum liðsfélögum mínum, fyrrverandi og núverandi."
„Til stuðningsmannana, ég hef ekki nægilega mörg orð fyrir ykkur. Stuðningurinn sem þið sýnduð mér í gegnum besta tímann á ferlinum og erfiðasta tímann er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma," segir Salah.
Egyptinn segist hafa upplifað bestu árin sín hjá Liverpool og þetta verði alltaf heimili hans.
„Takk fyrir allt, út af ykkur mun ég aldrei ganga einn."
— Mohamed Salah (@MoSalah) March 24, 2026
Athugasemdir


