Jón Þór: 'Fear factor' að koma á Akranesvöll

Jón Þór Hauksson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór Hauksson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, var að vonum kampakátur með sannfærandi 3-0 sigur sinna manna gegn Víkingum á Norðurálsvellinum uppá Akranesi fyrr í kvöld.
Skagamenn voru hrikalega öflugir í leiknum og sóttu í sig stemninguna úr stúkunni sem má svo sannarlega kalla tólfta manninn fyrir ÍA liðið.
„Ég hefði viljað 4-0.'' Sagði Jón Þór í kaldhæðni til að byrja með.
„Frábær liðsframmistaða, frábær liðsheild, frábær karakter. Virkilega vel útfærður leikur af okkar hálfu frá A til Ö á móti íslandsmeisturunum með þessa geggjuðu stemningu og stuðning, þá vildum við auðvitað stimpla okkur svolítið inn í mótið.''
„Við töluðum um það fyrir leikinn að stimpla okkur inn í fyrsta heimaleik þannig að það væri svolítill fear factor að koma á Akranesvöll og þannig ætti það að vera og við fengjum ekki betra tækifæri en að leggja íslandsmeistarana í fyrsta heimaleiknum og við náðum því, frábær leikur hjá strákunum.''
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan en þar talar Jón Þór nánar um leikinn, föstu leikatriðin, Oliver Stefánsson og fleira.



