Fotbolti.net
24.04.22 - 21:27
Sverrir Örn Einarsson

Rúnar Þór: Þetta var orðið helvíti þreytt og leiðinlegt

Auglýsing
Rúnar Þór Sigurgeirsson

Rúnar Þór Sigurgeirsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við fórum yfir að bæta varnarleikinn og skila því inn. Við fáum á okkur eitt mark sem að er eina skiptið sem við sofnum á verðinum. Heilt yfir fannst mér við vera betri í leiknum en vorum samt ekkert að skapa okkur nein hættuleg færi og vantaði upp á síðustu sendinguna.“ Sagði Rúnar Þór Sigurgeirsson leikmaður Keflavíkur eftir 1-0 tap Keflavíkur gegn Val fyrr í kvöld.
Rúnar hefur glímt við meiðsli undanfarið ár og var alls óvíst að hann yrði nokkuð með í sumar. Hver er staðan á honum?

„Ég átti að fara í aðgerð á morgun vegna kviðslits en ég er búinn að fresta henni. Ég get spilað á þessu og líður bara fínt.“
Sagði hann og bætti við um tilfinninguna að komast aftur út á völlinn.

„Þetta var orðið helvíti þreytt og leiðinlegt. Maður var alltaf að bíða í 4-6 vikur og eftir það er ég ennþá meiddur.“

Eftir að hafa mætt Breiðablik og Val í fyrstu umferðunum verða verkefnin ekkert auðveldari fyrir Keflavík sem fer næst í Víkina og mæta þar ríkjandi meisturum Víkings. Um verkefnið sagði Rúnar.

„Maður þarf að fara í hvern einasta leik 100%. Það spila öll lið á móti öllum og við þurfum að taka á því einhvertíman og það leggst bara vel í mig. “

Sagði Rúnar en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.