Örugglega ógeðslega góð skemmtun fyrir þá sem halda ekki með okkur sagði svekkur Ómar Ingi þjálfari HK eftir 5 -4 tap gegn Stjörnunni í kvöld.
Lestu um leikinn: Stjarnan 5 - 4 HK
Alltof margt ekki nógu gott hjá okkur í dag. Mér fannst við eiga eitthvað eftir þegar okkur tekst að lenda svona undir en mér fannst við ekki koma nógu kraftmiklir og nógu gott attitjúd út úr hálfleiknum sem kom mér á óvart miðað við hvernig leikhléið var.
Við komumst yfir snemma og þá breytist leikurinn doldið en við lögðum allavegana upp með að spila töluvert þéttari varnarleik en okkur tókst að gera og það er eitthvað sem við þurfum að vinna í að gera betur.
Ég tek jákvætt úr þessum leik að við skorum fjögur mörk og búum til tækifæri til að skora mörk og gerum vel í því. Góður karakter að koma til baka. En það neikvæða er að við erum að koma sjálfum okkur í þá stöðu að þurfa að vera að koma til baka tvisvar í þessum leik.
Nánar er rætt við Ómar í sjónvarpinu hér að ofan. Meðal annars hvort hann ætli að bæta við leikmannahópinn áður en glugginn lokar.