Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 15:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hin hliðin - Herdís Halla Guðbjartsdóttir (Breiðablik)
Kvenaboltinn
Herdís Halla í leik með Breiðabliki.
Herdís Halla í leik með Breiðabliki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gulli er fyrirmynd.
Gulli er fyrirmynd.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Forest er uppáhalds liðið í enska.
Forest er uppáhalds liðið í enska.
Mynd: EPA
Edith er efnileg.
Edith er efnileg.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stemningsmaðurinn Óskar Borgþórsson.
Stemningsmaðurinn Óskar Borgþórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Yndisleg, fyndin og með geggjaðan fatastíl.
Yndisleg, fyndin og með geggjaðan fatastíl.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Karitas myndi vinna Survivor.
Karitas myndi vinna Survivor.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frábær karakter og rugl fyndin.
Frábær karakter og rugl fyndin.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Herdís Halla er markvörður sem fædd er árið 2007. Hún er uppalin í Breiðabliki en steig sín fyrstu skref í meistaraflokki með venslafélaginu Augnabliki. Hún fór á láni til FH tímabilin 2023 og 2024, en í sumar mun hún verja markið hjá Blikum.

Herdís Halla hefur spilað fjölmarga leiki fyrir yngri landsliðin en í dag sýnir hún á sér hina hliðina.

Fullt nafn: Herdís Halla Guðbjartsdóttir.

Gælunafn: Dísa og HH.

Aldur: Verð 19 í maí.

Hjúskaparstaða: Á lausu.

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Það var 2021 með Augnablik og í fullri hreinskilni man ég ekkert eftir honum.

Uppáhalds drykkur: Coke zero og Pax ;).

Uppáhalds matsölustaður: Saffran, lang best.

Uppáhalds tölvuleikur: Ég er rugl góð í Fortnite.

Áttu hlutabréf eða rafmynt: Já.

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Úff svo erfið spurning, ég er alltaf að horfa á þætti... En ég ætla að gefa How I met your mother shout out.

Uppáhalds tónlistarmaður: Herra Hnetusmjör og Justin Bieber.

Uppáhalds hlaðvarp: FM95BLÖ.

Uppáhalds samfélagsmiðill: Instagram.

Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Fotbolti.net.

Fyndnasti Íslendingurinn: Auddi, Steindi og Gils.

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Það var systir mín að segja að allt gekk vel í fimm daga skoðun hjá syni hennar <3.

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Ég er mjög ólíkleg að fara í KR.

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Helena Sampaio úr BK häcken er mjög góð.

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Hef verið ótrúlega heppin með þjálfara, en Valdimar Valdimarsson er one of a kind.

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Ég og Bergdís kunnum pirrandi vel á hvor aðra.

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: Hannes Þór og Gulli Gull.

Sætasti sigurinn: Sigurinn á móti Fortuna Hjörring í 16 liða úrslitum í Europa cup, unnum í framlengingu, það var mjög gaman.

Mestu vonbrigðin: Meiðslin og aðgerðin í fyrra.

Uppáhalds lið í enska: Nottingham Forest.

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Ég myndi allan daginn vilja fá Sonju Sigurðar í strikerinn.

Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Edith Kristín Kristjánsdóttir.

Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Óskar Borgþórsson.

Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Erla Sól fyrrum leikmaður FH er mjög falleg.

Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Cristiano Ronaldo.

Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Ég myndi taka út óbeina aukaspyrnu, það væri gaman.

Uppáhalds staður á Íslandi: Sauðárkrókur, lang best að vera þar.

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Þegar ég var að spila á þríhyrningsvellinum á Rey Cup, völlurinn var svo skakkur og ég var að miða staðsetninguna mína við markið á móti... Það gekk alls ekki vel og ég var langt frá því að vera að verja mitt eigið mark.

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Ég reyni bara að halda alltaf sömu rútínu á leikdegi.

Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Pílan um jólin er alltaf skemmtileg og svo fylgist ég rosalega vel með mínum mönnum í Tindastól í körfunni.

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike phantom low.

Í hverju varstu/ertu lélegastur í­ skóla: Vocabulary í ensku er ömurlega leiðinlegt.

Vandræðalegasta augnablik: Þegar ég náði áttum eftir aðgerðina í fyrra og sá að ég var búin að senda ansi mörg video skilaboð þar á meðal á sjúkraþjálfarann minn og þjálfarann minn af mér bulla á ensku.

Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Frændur mínir í Grindavík Haraldur Björgvin og Rúnar Ingi og síðan Jesse Lingard, frændur mínir eru drullu skemmtilegir og held að Lingard væri bara plús.

Bestur/best í klefanum og af hverju: Mikaela Nótt, yndisleg, fyndin og með geggjaðan fatastíl.

Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Karítas Tómasdóttir í Survivor, hún myndi vinna.

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Man alla texta og númera raðir sem ég heyri.

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Arnfríður Auður, virkaði feimin en er svo geggjuð, frábær karakter og rugl fyndin.

Hverju laugstu síðast: Pottþétt að ég væri að fara að læra en fór bara að horfa á þætti í staðin.

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Uppspil og slútt þegar ég er ein á móti 10 leikmönnum.

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Úff, ætli ég myndi ekki bara spyrja Justin hvort hann elski ennþá Selenu.

Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Hlakka til að sjá sem flesta í stúkunni í sumar, áfram Breiðablik!
Slapp
banner
banner