Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 21:14
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeildin: Ellefu marka veisla í Mosó - Kári lagði upp þrjú mörk í sigri Fylkis
Lengjudeildin
ÍR-ingar fóru hamförum
ÍR-ingar fóru hamförum
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson
Kári Sigfússon
Kári Sigfússon
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lengjudeildin hófst af þvílíkum krafti í kvöld. Það var markaveisla þegar Afturelding og ÍR mættust í Mosfellsbæ.

Gestirnir voru komnir með þriggja marka forystu eftir 18 mínútna leik en Afturelding minnkaði muninn stuttu síðar. Aron Elí Sævarsson átti skot í stöng og boltinn barst til Joacim Holtan sem skoraði örugglega.

Stuttu síðar endurheimtu ÍR-ingar þriggja marka forystu þegar Stefán Þór Pálsson stýrði boltanum í netið eftir sendingu frá Óliver Andra Einarssyni.

ÍR-ingar fengu vítaspyrnu strax í upphafi seinni hálfleiks þegar Andi Hoti reif Bergvin Fannar Helgason niður í teignum. Emil Nói Sigurhjartarson steig á punktinn og skoraði fimmta mark ÍR.

Leiknum var hvergi nærri lokið því Mosfellingar svöruðu með tveimur mörkum en Elmar Kári Eneson Cogic lagði upp bæði mörkin. Emil Nói skoraði síðan sitt annað mark og sjötta mark ÍR með glæsilegu skoti. Eftir rúmlega klukkutíma leik skoraði síðan Jón Arnar Sigurðsson sjöunda mark ÍR.

Elmar Kári klóraði í bakkann fyrir Aftureldingu með marki beint úr aukaspyrnu en nær komust Mosfellingar ekki. Ótrúlegur ellefu marka leikur.

Fylkir fékk nýliða Ægis í heimsókn. Fyrri hálfleikurinn var mjög bragðdaufur en Fylkismenn mættu sterkir til leiks í seinni hálfleik.

Eyþór Aron Wöhler kom Fylki yfir strax í upphafi seinni hálfleiks eftir fyrirgjöf frá Kára Sigufússyni. Máni Austmann Hilmarsson bætti öðru markinu við og aftur var það eftir fyrirgjöf frá Kára.

Benedikt Daríus Garðarsson innsiglaði sigur Fylkis eftir klukkutíma leik og Kári fullkomnaði stoðsendingaþrennuna.

Fylkir 3 - 0 Ægir
1-0 Eyþór Aron Wöhler ('46 )
2-0 Máni Austmann Hilmarsson ('55 )
3-0 Benedikt Daríus Garðarsson ('61 )
Lestu um leikinn

Afturelding 4 - 7 ÍR
0-1 Stefán Þór Pálsson ('10 )
0-2 Orri Bjarkason ('15 )
0-3 Óliver Andri Einarsson ('18 )
1-3 Joacim Emil Godhei Holtan ('21 )
1-4 Stefán Þór Pálsson ('26 )
1-5 Emil Nói Sigurhjartarson ('48 )
2-5 Aron Elí Sævarsson ('50 )
3-5 Óðinn Bjarkason ('53 )
3-6 Emil Nói Sigurhjartarson ('57 )
3-7 Jón Arnar Sigurðsson ('63 )
4-7 Elmar Kári Enesson Cogic ('75 )
Lestu um leikinn
Slapp
banner
banner
banner