Viðar Örn Kjartansson og Jón Daði Böðvarsson spiluðu sinn fyrsta leik saman síðan 2012 í treyju Selfoss í dag þegar liðið mætti KFG í síðasta leik liðsins fyrir mót.
Leiknum lauk með 3-1 sigri Selfoss. Jón Daði, Brynjar Bergsson og Elías Karl Heiðarsson skoruðu mörk Selfoss.
Leiknum lauk með 3-1 sigri Selfoss. Jón Daði, Brynjar Bergsson og Elías Karl Heiðarsson skoruðu mörk Selfoss.
Þeir eru báðir uppaldir á Selfossi. Jón Daði kom aftur heim síðasta sumar en hann fór út í atvinnumennsku frá Selfossi eftir sumarið 2012. Viðar Örn hélt út í atvinnumennsku árið 2014 eftir eitt sumar hjá Fylki.
Hann sneri aftur heim árið 2014 og samdi við KA en hann samdi síðan við uppeldisfélagið í vetur.
Selfoss spilar í 2. deild í sumar eftir að hafa fallið úr Lengjudeildinni síðasta sumar. Liðið hefur leik á heimavelli gegn KFA laugardaginn 2. maí.



