Fotbolti.net
24.05.23 - 23:06
Brynjar Ingi Erluson

Spánn: Atlético fór illa að ráði sínu í Barcelona

Spánn: Atlético fór illa að ráði sínu í Barcelona
Canon

Mynd: EPA

Leikmenn Atlético Madríd klóra sér sennilega í hausnum næstu daga yir því hvernig liðið vann ekki Espanyol í La Liga í kvöld en liðið gerði 3-3 jafntefli eftir að hafa komist þremur mörkum yfir.
Saul Niguez og Antoine Griezmann komu liðinu í 2-0 og í upphafi síðari hálfleiks bætti Yannick Carrasco við þriðja markinu.

Espanyol sem er í harðri fallbaráttu neitaði að gefast upp og var það Cesar Montes sem minnkaði muninn þegar tæpur hálftími var eftir. Tólf mínútum síðar fengu heimamenn víti sem Joselu skoraði úr og svo kom jöfnunarmarkið á 79. mínútu.

3-3 jafntefli niðurstaðan og Espanyol heldur áfram í vonina um að halda sér uppi. Liðið er í næst neðsta sæti með 35 stig, þremur stigum frá öruggu sæti. Atlético er á meðan í 3. sæti með 73 stig.

Getafe lagði þá Real Betis að velli, 1-0. Omar Alderete gerði sigurmarkið á 69. mínútu og það versnaði fyrir Betis því German Pezzella, varnarmaður liðsins, sá rautt tíu mínútum síðar. Betis er í 6. sæti með 56 stig en Getafe í 16. sæti með 38 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Betis 0 - 1 Getafe
0-1 Omar Alderete ('69 )
Rautt spjald: German Pezzella, Betis ('78)

Espanyol 3 - 3 Atletico Madrid
0-1 Saul Niguez ('21 )
0-2 Antoine Griezmann ('44 )
0-3 Yannick Carrasco ('46 )
1-3 Cesar Montes ('64 )
2-3 Joselu ('76 , víti)
3-3 Vinicius De Souza Costa ('79 )

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona10+2927
2Atletico Madrid10+1225
3Real Madrid10+1524
4Betis10+220
5Real Sociedad10+119
6Sevilla10017
7Alaves10+312
8Athletic9+312
9Celta10+312
10Villarreal10+112
11Deportivo10011
12Osasuna10-1011
13Racing Santander10-1111
14Levante10-310
15Elche10-310
16Vallecano9-89
17Getafe10-109
18Espanyol10-28
19Valencia10-106
20Malaga10-125
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.