Fotbolti.net
24.05.26 - 16:42
Ívan Guðjón Baldursson

Bætti stoðsendingamet Gerrard og fékk heiðursskiptingu

Salah er á förum í sumar og hefur Curtis Jones verið sterklega orðaður við Inter.

Salah er á förum í sumar og hefur Curtis Jones verið sterklega orðaður við Inter.

Canon

Mynd: EPA

Mohamed Salah var í byrjunarliði Liverpool í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag þrátt fyrir afar umdeild ummæli sem hann lét falla í síðustu viku.
Salah skaut á Slot - „Vil sjá Liverpool fara aftur í þungarokksboltann“
TENGT EFNI

Salah skaut á Slot - „Vil sjá Liverpool fara aftur í þungarokksboltann“



Liverpool þurfti stig á heimavelli gegn Brentford til að tryggja sér Meistaradeildarsæti fyrir næstu leiktíð og reyndist Salah mikilvægur í leiknum sem er enn í gangi. Hann lagði upp fyrsta markið fyrir Curtis Jones og fékk svo heiðursskiptingu rúmum stundarfjórðungi síðar, á 74. mínútu.

Sjáðu heiðursskiptinguna.

Þetta var 93. stoðsending Salah í ensku úrvalsdeildinni og bætti hann þar með félagsmet Steven Gerrard, sem gaf 92 stoðsendingar.

Kevin Schade jafnaði metin fyrir Brentford og er staðan 1-1 þegar tíu mínútur eru eftir af venjulegum leiktíma.

Liverpool þurfti þetta stig aðeins ef Bournemouth tækist að vinna stórsigur á útivelli gegn Nottingham Forest, sem er ekki raunin. Staðan er 1-1 í Nottingham.

Liverpool er því svo gott sem öruggt með Meistaradeildarsætið sitt.

Salah var líka nálægt því að skora í fyrri hálfleik þegar skot hans fór í stöngina.

„Myndi ekki hleypa Salah nálægt leikvangnum“
TENGT EFNI

„Myndi ekki hleypa Salah nálægt leikvangnum“




Mo Salah receives a guard of honour at his final match for Liverpool.
by
u/Sparky-moon in
soccer
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.