Fotbolti.net
24.05.26 - 15:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Bruno sló stoðsendingametið

Bruno sló stoðsendingametið
Canon

Mynd: EPA

Bruno Fernandes, fyrirliði Man Utd, hefur slegið metið yfir flestar stoðsendingar á einu tímabili.

Fernandes er kominn með 21 stoðsendingu en sú 21. kom þegar Patrick Dorgu skoraði með skalla eftir hornspyrnu frá Fernandes.
Portúgalinn jafnaði metið um síðustu helgi þegar hann lagði upp í 3-2 sigri gegn Nottingham Forest. Hann var þá þriðji í sögunni, á eftir Thierry Henry og Kevin De Bruyne, sem leggur upp 20 mörk í einu tímabili.

Það styttist í hálfleikinn en Man Utd er enn marki yfir.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.