Stjarnan tekur á móti Íslandsmeisturum Víkings R. á Samsungvellinum á þriðjudaginn klukkan 19:15 í Bestu deild karla og verða sérstakir styrktarmiðar til sölu.
Venjulegur aðgangsmiði á leikinn mun kosta 2500 krónur (3000 á leikdegi) og hægt verður að greiða aukalega fyrir sérstaka Áfram Ingvar styrktarmiða, til styrktar Ingvars Jónssonar.
Ingvar, sem er fyrrum leikmaður Stjörnunnar og núverandi leikmaður Víkings, er í erfiðri og ósanngjarnri baráttu við krabbamein. Af því tilefni hafa Stjarnan og Víkingur ákveðið að sameinast um söfnun til stuðnings Ingvari og fjölskyldu hans.
„Við hvetjum alla til að mæta á Samsungvöllinn, fyllum völlinn, styðjum liðið og um leið stöndum þétt við bakið á Ingvari og fjölskyldu í þessu erfiða verkefni," segir meðal annars í tilkynningu frá Stjörnunni.
Venjulegur aðgangsmiði:
-2.500 kr. í forsölu
-3.000 kr. á leikdegi
Áfram Ingvar styrktarmiðar:
-5.000 kr.
-10.000 kr.
-15.000 kr.
Samsettur miði:
-4.000 kr. Aðgangsmiði á leik + Fyrir Ingvar styrkur
Knattspyrnudeild Víkings hefur einnig stofnað styrktarreikning sem hægt er að leggja inn á:
Reikningur: 0357-22-008868
Kennitala: 420787-1469



