24.06.05 - 15:58
Magnús Már Einarsson
Veron seldur til Inter (Staðfest)

Inter Milan hefur keypt argentínska miðjumanninn Juan Sebastian Veron frá Chelsea. Veron sem er þrítugur var í láni hjá Inter á síðustu leiktíð en nú hefur liðið keypt hann þó kaupverðið hafi ekki verið gefið upp.
Veron sem lék 24 leiki í Serie A með Inter á síðustu leiktíð og 10 leiki í Meistaradeildinni hefur gert tveggja ára samning við liðið. Veron lék aðeins 15 leiki fyrir Chelsea en hann kom til liðsins frá Manchester United árið 2003 á 15 milljónir punda.
Marco Branca tæknilegur ráðgjafi hjá Inter sagði: ,,Við erum mjög ángæðir með hvernig samningaviðræðum lauk. Að halda Veron hjá Inter var markmið félagsins, þjálfarans Roberto Mancini og sjálfs leikmannsins. Hann hafði hafði látið í ljós í nokkurn tíma að hann vildi vera áfram hjá okkur."