24.06.05 - 16:04
Magnús Már Einarsson
Frey til Fiorentina (Staðfest)




Fiorentina hefur fengið franska markvörðinn Sebastien Frey að láni frá Parma. Ítalskir fjölmiðlar telja þó að Frey muni vera keyptur til Fiorentina á næstunni.
Þessi 25 ára leikmaður hefur leikið í 7 ár á Ítalíu en hann lék frábærlega með Parma á síðasta tímabili þar sem liðið rétt náði að bjarga sér frá falli með sigri á Bologna í umspilsleikjum.
Frey kom til Inter Milan frá Cannes árið 1999 og eftir að hafa verið í láni hjá Hellas Verona fór hann til Parma 2001.
Frey kom til Inter Milan frá Cannes árið 1999 og eftir að hafa verið í láni hjá Hellas Verona fór hann til Parma 2001.
