Fotbolti.net
24.06.14 - 06:00
Elvar Geir Magnússon

Hólmar Örn farinn frá Bochum - Leitar að liði

Hólmar Örn farinn frá Bochum - Leitar að liði
Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Hólmar Örn Eyjólfsson er hættur hjá þýska B-deildarliðinu Bochum.

Hann sagði við Morgunblaðið að hann hefði hafnað tilboði félagsins um nýjan samning.eftir að hafa leikið með því undanfarin þrjú ár.
Hólmar er að leita fyrir sér með nýtt félag fyrir næsta keppnistímabil. Félög í Þýskalandi koma til greina en enn er allt opið í þeim efnum.

Hólmar er 23 ára gamall og á að baki einn A-landsleik og 27 leiki með 21-árs landsliði Íslands.

Hann var í röðum West Ham í þrjú ár eftir að enska félagið keypti hann af HK árið 2008.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.