Fotbolti.net
24.06.25 - 14:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fimm áhugaverðir kostir fyrir Víkinga

Björn og John voru látnir fara.

Björn og John voru látnir fara.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur Reykjavík fer inn í EM-pásuna í leit að nýjum þjálfara fyrir kvennalið sitt.

John Andrews og Björn Sigurbjörnsson voru fyrr í dag látnir fara frá félaginu út af slökum árangri í sumar.
John og Björn reknir frá Víkingi (Staðfest)
TENGT EFNI

John og Björn reknir frá Víkingi (Staðfest)

Víkingur er í fallsæti núna þegar löng EM-pása hefst en þetta tímabil hefur verið mikil vonbrigði eftir frábær ár. Víkingur varð bikarmeistari 2023 og endaði í þriðja sæti Bestu deildar kvenna í fyrra.

En hver gæti tekið við liðinu?

Það er mjög áhugaverð spurning. Hér fyrir neðan má sjá fimm mögulega kosti fyrir Víkinga í þetta starf.
<b>Einar Guðnason</b> - Víkingur í húð og hár. Fyrrum aðstoðarþjálfari karlaliðsins. Hefur verið búsettur í Svíþjóð undanfarin ár en það er spurning hvort að hann sé tilbúinn að koma heim og taka þetta áhugaverða starf að sér.

Einar Guðnason - Víkingur í húð og hár. Fyrrum aðstoðarþjálfari karlaliðsins. Hefur verið búsettur í Svíþjóð undanfarin ár en það er spurning hvort að hann sé tilbúinn að koma heim og taka þetta áhugaverða starf að sér.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Óskar Smári Haraldsson</b> - Hefur gert mjög athyglisverða hluti með Fram þar sem hann kom liðinu úr 2. deild og upp í Bestu deildina þar sem liðið siglir bara lygnan sjó um miðjan deild. Mjög svo spennandi þjálfari.

Óskar Smári Haraldsson - Hefur gert mjög athyglisverða hluti með Fram þar sem hann kom liðinu úr 2. deild og upp í Bestu deildina þar sem liðið siglir bara lygnan sjó um miðjan deild. Mjög svo spennandi þjálfari.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Jón Sigurðsson - Donni er með mikla reynslu úr kvennaboltanum og er hann í dag þjálfari Tindastóls. Þar hefur hann gert vel við erfiðar aðstæður á þessu tímabili. Vann á sínum tíma Íslandsmeistaratitil með Þór/KA og er mjög svo heillandi kostur fyrir Víkinga ef hann er tilbúinn að flytja á höfuðborgarsvæðið.

Halldór Jón Sigurðsson - Donni er með mikla reynslu úr kvennaboltanum og er hann í dag þjálfari Tindastóls. Þar hefur hann gert vel við erfiðar aðstæður á þessu tímabili. Vann á sínum tíma Íslandsmeistaratitil með Þór/KA og er mjög svo heillandi kostur fyrir Víkinga ef hann er tilbúinn að flytja á höfuðborgarsvæðið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Pétur Pétursson</b> - Vann mikið af titlum með Val en hann og félagið fóru í aðra átt eftir síðasta tímabil. Allflestir þeir sem unnu með Pétri hjá Val tala gríðarlega vel um hann og í dag líta það út sem mikil mistök að hann hafi ekki haldið áfram með liðið. Væri alvöru yfirlýsing hjá Víkingum að ráða þessa miklu goðsögn.

Pétur Pétursson - Vann mikið af titlum með Val en hann og félagið fóru í aðra átt eftir síðasta tímabil. Allflestir þeir sem unnu með Pétri hjá Val tala gríðarlega vel um hann og í dag líta það út sem mikil mistök að hann hafi ekki haldið áfram með liðið. Væri alvöru yfirlýsing hjá Víkingum að ráða þessa miklu goðsögn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Brynjar Björn Gunnarsson</b> - Er að taka til starfa hjá félaginu sem meðþjálfari Sölva Geir Ottesen í Evrópukeppni. Víkingar þurftu að ráða inn þjálfara með UEFA Pro þjálfaragráðuna og því kemur Brynjar inn. Það gæti verið áhugavert að sjá hvort að hann sé tilbúinn að taka við þessu starfi, en hann hefur bara þjálfað í karlaboltanum til þessa. Fyrrum landsliðs- og atvinnumaður.

Brynjar Björn Gunnarsson - Er að taka til starfa hjá félaginu sem meðþjálfari Sölva Geir Ottesen í Evrópukeppni. Víkingar þurftu að ráða inn þjálfara með UEFA Pro þjálfaragráðuna og því kemur Brynjar inn. Það gæti verið áhugavert að sjá hvort að hann sé tilbúinn að taka við þessu starfi, en hann hefur bara þjálfað í karlaboltanum til þessa. Fyrrum landsliðs- og atvinnumaður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.