Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 24. júlí 2020 14:30
Magnús Már Einarsson
Yaya Toure æfir með Leyton Orient
Mynd: Getty Images
Yaya Toure, fyrrum miðjumaður Manchester City og Barcelona, æfir þessa dagana með Leyton Orient í ensku D-deildinni.

Hinn 37 ára gamli Toure er án félags í augnablikinu en hann spilaði síðast með Qingdao Huanghai í Kína.

Toure býr í London og umboðsmaður hans ræddi við Leyton Orient um að leikmaðurinn fái að æfa með liðinu á næstunni.

Toure ætlar að æfa með Leyton á meðan hann leitar að nýju félagi og ákveður næsta skref á ferlinum.

Athugasemdir
banner
banner