23.07.26 - 21:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sambandsdeildin: Rúnar Alex í markinu í sex marka leik - Tap hjá Alex og Sigga Ragga

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Rúnar Alex Rúnarsson varði mark FC Kaupmannahafnar þegar liðið mætti úkraínska liðinu Polissya Zhytomyr í Slóvakíu í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld.
Úkraínska liðið var með 2-1 forystu í hálfleik. FCK komst í 3-2 þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma en Polissya náði að jafna metin og 3-3 jafntefli niðurstaðan.

Liðin mætast á Parken í Kaupmannahöfn á miðvikudaginn í næstu viku.
Alex Freyr Elísson kom inn á undir lokin í tapi færeyska liðsins NSÍ Runavík á heimavelli gegn slóvenska liðinu Koper. NSÍ missti mann af velli með rautt spjald eftir rúmlega hálftíma leik og fékk tvö mörk á sig undir lokin. Sigurður Ragnar Eyjólfsson er þjálfari liðsins. Liðin mætast í Slóveníu á fimmtudaginn í næstu viku.
Sverrir Ingi Ingason sleit krossband fyrr í þessum mánuði og var því ekki með þegar gríska liðið Panathinaikos vann ungverska liðið Paks á útivelli. Liðin mætast aftur í Grikklandi á fimmtudaginn í næstu viku.
Eyþór Martin Björgólfsson var ekki í leikmannahópi skoska liðsins Motherwell þegar liðið vann HB frá Færeyjum á heimavelli. Liðin mætast aftur í Færeyjum á fimmtudaginn í næstu viku.