Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 24. ágúst 2019 23:10
Ívan Guðjón Baldursson
Bruno Henrique bætti hraðamet Gareth Bale
Mynd: Getty Images
Gareth Bale hefur átt opinbert hraðamet FIFA í einhvern tíma en það var bætt fyrr í vikunni af Bruno Henrique, leikmanni Flamengo í Brasilíu.

Hraðamet Bale var 36,9km/klst en Henrique mældist á 38km hraða á dögunum.

Henrique er 28 ára gamall framherji sem er fyrst núna að ryðja sér leið inn í brasilíska landsliðið.

Hann hefur verið í fantaformi í brasilíska boltanum og er kominn með 7 mörk í 14 deildarleikjum.

Henrique var hjá Wolfsburg tímabilið 2016-17 en fann sig ekki þar. Hann spilaði 17 leiki og hélt svo til Santos í Brasilíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner