Fotbolti.net
24.10.26 - 16:01
Brynjar Ingi Erluson

Besta deildin: Þór bjargaði sér en KA féll

Stjarnan vann Forsetabikarinn með ótrúlegum sigri

Þórsarar verða áfram í Bestu deildinni

Þórsarar verða áfram í Bestu deildinni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Þór tryggði sér áframhaldandi sæti í Bestu deildinni eftir æsispennandi lokaumferð í dag. Þórsarar unnu 2-1 sigur á FH í Laugardalnum og sendu þar með nágranna sína í KA niður um deild, þrátt fyrir stórsigur KA á ÍBV.
Þórsarar fengu verstu mögulegu byrjun í Laugardalnum. KA komst snemma yfir gegn ÍBV á meðan Þór lenti undir þegar Adolf Daði Birgisson skoraði eftir fyrirgjöf Gils Gíslasonar.

FH-ingar höfðu öll völd á vellinum og sóttu að öðru marki, en þá tóku Þórsarar við sér og sneru leiknum við með tveimur mörkum frá Þorra Ingólfssyni með stuttu millibili.

Fyrra markið kom eftir skyndisókn sem Þorri kláraði, en Jökull Andrésson hefði átt að gera betur í marki FH. Skömmu síðar átti Bjarni Guðjón Brynjólfsson skot í stöngina og boltinn hrökk út til Þorra sem var réttur maður á réttum stað og skoraði öðru sinni.

Þórsarar vildu síðan fá vítaspyrnu á 32. mínútu þegar Þorri var sparkaður niður innan teigs. Af endursýningum að dæma virtist þetta vera vítaspyrna, en Helgi Mikael Jónasson, dómari leiksins, var á öðru máli.

Fyrri hálfleikurinn var stórskemmtilegur og nóg af færum á báða bóga, en Þórsarar fóru með 2-1 forystu inn í leikhléið.

FH-ingar voru líklegri í upphafi síðari hálfleiks og fengu tækifæri til að jafna metin, en tókst ekki að nýta þau. Þórsarar kölluðu síðan aftur eftir vítaspyrnu þegar Þorri féll innan teigs, en Helgi Mikael lét leikinn halda áfram í annað sinn.

Þórsarar héldu hins vegar út og þegar lokaflautið gall brutust út gríðarleg fagnaðarlæti hjá leikmönnum og stuðningsmönnum liðsins. Sætið í Bestu deildinni var tryggt og fögnuðurinn í Laugardalnum eftir því. Ótrúlegar senur!

KA vann stórt en féll samt

KA-menn vissu að þeir þyrftu að vinna ÍBV og treysta á hagstæð úrslit í Laugardalnum. Þeir gerðu sitt með því að vinna stórsigur, 5-1, en það dugði ekki til.

Jakob Snær Árnason kom KA yfir strax á þriðju mínútu með skallamarki og á þeirri stundu voru Akureyringarnir búnir að koma sér upp úr fallsætinu. Það átti þó eftir að breytast þegar Þórsarar sneru sínum leik við gegn FH.

Heiðmar Þór Magnússon jafnaði fyrir Eyjamenn eftir hornspyrnu, en KA tók fljótlega aftur völdin og skoraði tvö mörk til viðbótar fyrir leikhlé. Mikael Breki Þórðarson og Hallgrímur Mar Steingrímsson komu liðinu í 3-1 og staðan því vænleg á Greifavellinum.

Hallgrímur bætti við öðru marki sínu á 57. mínútu þegar hann fékk boltann innan teigs og lagði hann snyrtilega í fjærhornið. Adam Ægir Pálsson innsiglaði síðan 5-1 sigurinn á 79. mínútu.

KA-menn gerðu því allt sem þeir gátu á vellinum, en úrslitin í Laugardalnum féllu þeim ekki í hag. Þeir falla úr Bestu deildinni með 29 stig, aðeins einu stigi á eftir Þór sem bjargaði sér á lokadegi tímabilsins. Eyjamenn höfnuðu á botninum með 22 stig.

Stjarnan vann Forsetabikarinn með ótrúlegum hætti

Stjörnumenn unnu einn ótrúlegasta sigur sumarsins þegar þeir gjörsamlega pökkuðu Val saman, 6-0, í Garðabæ og tryggðu sér Forsetabikarinn með eftirminnilegum hætti.

Fyrir leikinn var ljóst að Stjarnan þyrfti að vinna með að minnsta kosti sex marka mun til að hafa betur gegn Val í baráttunni um bikarinn. Það virtist ærið verkefni, en Garðbæingar tóku áskoruninni fagnandi.

Stjörnumenn léku á als oddi í fyrri hálfleik og skoruðu fimm mörk. Guðmundur Baldvin Nökkvason og Birnir Snær Ingason komu liðinu í 2-0 á fyrstu tuttugu mínútunum og Birnir bætti við þriðja markinu á 35. mínútu þegar hann teygði sig í boltann og kom honum í netið.

Örvar Eggertsson skoraði síðan fjórða markið áður en Jóhann Árni Gunnarsson færði Stjörnuna enn nær hinu ótrúlega með hörkuskoti fyrir utan vítateig undir lok fyrri hálfleiks.

Staðan var því 5-0 í leikhléi og Stjörnumenn vissu að þeim vantaði aðeins eitt mark til viðbótar. Þeir sóttu án afláts að sjötta markinu, en tíminn leið og spennan jókst með hverri mínútunni.

Þegar aðeins fjórar mínútur voru eftir kom loksins augnablikið sem Garðbæingar höfðu beðið eftir.

Boltinn barst út á vinstri kantinn til Christian Bjarma Alexanderssonar sem fann Guðmund Baldvin á ferðinni inn í vítateiginn. Guðmundur lét vaða í fyrsta og sendi boltann upp við nærstöngina.

Sjötta markið var staðreynd og fögnuðurinn gríðarlegur í Garðabæ.

Fleiri urðu mörkin ekki og Stjarnan tryggði sér þar með Forsetabikarinn eftir stórkostlega frammistöðu. Liðið endaði á toppi neðri hlutans með 34 stig og hafði betur gegn Val á markatölu, en Valsmenn höfnuðu í öðru sæti neðri hlutans.

KA 5 - 1 ÍBV
1-0 Jakob Snær Árnason ('3 )
1-1 Heiðmar Þór Magnússon ('17 )
2-1 Mikael Breki Þórðarson ('38 )
3-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('45 )
4-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('57 )
5-1 Adam Ægir Pálsson ('70 )
Lestu um leikinn

Stjarnan 6 - 0 Valur
1-0 Guðmundur Baldvin Nökkvason ('14 )
2-0 Birnir Snær Ingason ('21 )
3-0 Birnir Snær Ingason ('35 )
4-0 Örvar Eggertsson ('38 )
5-0 Jóhann Árni Gunnarsson ('43 )
6-0 Guðmundur Baldvin Nökkvason ('86 )
Lestu um leikinn

FH 1 - 2 Þór
1-0 Adolf Daði Birgisson ('7 )
1-1 Þorri Ingólfsson ('17 )
1-2 Þorri Ingólfsson ('19 )
Rautt spjald: Oliver Stefánsson, FH ('94) Lestu um leikinn
KA er fallið

KA er fallið

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan vann Forsetabikarinn

Stjarnan vann Forsetabikarinn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.