Fotbolti.net
24.10.26 - 16:28
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Andri Lucas með tvennu og er næstmarkahæstur

Andri Lucas getur ekki hætt að skora!

Andri Lucas getur ekki hætt að skora!

Canon

Mynd: Blackburn

Andri Lucas Guðjohnsen var enn á ný á skotskónum með Blackburn Rovers í ensku B-deildinni í dag, en hann skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri liðsins gegn Wrexham.
Íslenski landsliðsmaðurinn hefur verið iðinn við kolann í upphafi tímabils og stefnir allt í að þetta verði hans besta tímabil á atvinnumannaferlinum til þessa.

Hann skoraði sitt sjöunda deildarmark undir lok fyrri hálfleiks og bætti síðan því áttunda við þegar um tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Andri er nú næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar, en aðeins Will Lankshear, framherji Middlesbrough, hefur skorað fleiri mörk eða ellefu talsins.

Blackburn er í tíunda sæti deildarinnar með 18 stig eftir sigurinn í dag.

West Ham tapaði þá 3-2 fyrir Southampton á meðan Úlfarnir unnu 1-0 sigur á Watford.

Úrslit og markaskorarar:

Blackburn 2 - 0 Wrexham
1-0 Andri Gudjohnsen ('44 )
2-0 Andri Gudjohnsen ('79 )

Cardiff City 1 - 0 Birmingham
0-0 Yousef Salech ('22 , Misnotað víti)
1-0 Yousef Salech ('32 )

Lincoln City 4 - 1 Burnley
0-1 Andreas Hountondji ('39 )
1-1 Ben House ('45 )
2-1 Mikkel Ladefoged ('49 )
3-1 Dom Jefferies ('57 )
4-1 Mikkel Ladefoged ('67 )
4-1 Marcus Edwards ('84 , Misnotað víti)

Preston NE 1 - 1 West Brom
1-0 Andrew Hughes ('78 )
1-1 Aune Heggebo ('82 )

QPR 5 - 0 Swansea
1-0 Richard Kone ('2 )
2-0 Richard Kone ('10 )
3-0 Richard Kone ('15 , víti)
4-0 Jimmy Dunne ('45 )
5-0 Jimmy Dunne ('86 )

Stoke City 0 - 0 Bristol City

West Ham 2 - 3 Southampton
0-1 Kuryu Matsuki ('2 )
0-2 James Bree ('11 )
1-2 Kyle Walker-Peters ('24 )
1-3 Lewis Dobbin ('34 )
2-3 Tomas Soucek ('90 )

Wolves 1 - 0 Watford
1-0 Adam Armstrong ('35 )

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough12+1025
2Swansea12+323
3West Ham12+1722
4Wolves12+421
5West Brom12+321
6Southampton12+1220
7Birmingham12+820
8QPR12+820
9Stoke City12+220
10Blackburn12+318
11Portsmouth12+118
12Sheffield Utd12+116
13Millwall12-115
14Bristol City12-315
15Lincoln City12-715
16Cardiff City12+214
17Wrexham12-314
18Charlton Athletic12-714
19Bolton12-714
20Norwich12-212
21Watford12-1011
22Burnley12-88
23Derby County12-117
24Preston NE12-155
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.