Fotbolti.net
24.10.26 - 13:46
Brynjar Ingi Erluson

Hetja Villa: Þetta er bara byrjunin

Nicolas Jackson er með sjö mörk í ellefu leikjum með Villa

Nicolas Jackson er með sjö mörk í ellefu leikjum með Villa

Canon

Mynd: EPA

Senegalski framherjinn Nicolas Jackson heldur áfram að njóta sín hjá Aston Villa og gera varnarmönnum lífið leitt, en hann skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri á toppliði Manchester City í dag.
England: Villa fyrst til að leggja Man City að velli
TENGT EFNI

England: Villa fyrst til að leggja Man City að velli

Chelsea hafði ekki lengur not fyrir Jackson og leyfði honum því að ganga til liðs við Aston Villa í sumar.

Þar hefur hann heldur betur fundið sig og er kominn með sjö mörk í öllum keppnum á tímabilinu.

„Þetta var ótrúlegt. Við náðum í sigurinn og það er það mikilvægasta. Man City er mjög sterkt lið og er á toppi deildarinnar, en nú þurfum við að leggja þennan leik að baki og einbeita okkur að þeim næsta.“

Jackson olli varnarmönnum City miklum vandræðum í leiknum og segist njóta þess að gera andstæðingum sínum lífið leitt.

„Ég geri það með ánægju í hvert einasta skipti og mun halda áfram að leggja hart að mér fyrir liðið og þjálfarann. Það er það mikilvægasta fyrir mig.“

Jackson viðurkennir að það hafi verið ákveðin áskorun að koma til Villa, en það hafi hjálpað mikið að þekkja Unai Emery frá því þeir unnu saman hjá Villarreal.

„Það er aldrei auðvelt að koma inn í nýtt lið, en það hjálpar mikið að þekkja þjálfarann. Andrúmsloftið hjá bæði leikmönnum og þjálfurum er frábært og þetta er bara byrjunin. Við ætlum að halda áfram að taka einn leik fyrir í einu,“ sagði Jackson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.