24.10.26 - 13:30
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið KA og ÍBV: Tveir í banni hjá Eyjamönnum

Hallgrímur Mar er á sínum stað í liði KA

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Hallgrímur Mar er á sínum stað í liði KA

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
KA og ÍBV eigast við á Greifavellinum klukkan 14:00 í dag í lokaumferð Bestu deildar karla.
Lestu um leikinn: KA 1 - 1 ÍBV
Það er allt undir hjá KA-mönnum sem þurfa á sigri að halda og treysta jafnframt á að Þór tapi stigum gegn FH til að halda sæti sínu í deildinni.
Það myndi líka duga KA að gera jafntefli en Þór þyrfti þá að tapa sínum leik.
KA stillir upp óbreyttu liði frá 4-1 tapinu gegn Val á dögunum, en tvær breytingar eru á byrjunarliði ÍBV.
Róbert Elís Hlynsson og Eiður Atli Rúnarsson koma inn í liðið í stað Bjarka Björns Gunnarssonar og Felix Arnar Friðrikssonar, sem taka báðir út leikbann.

Byrjunarlið KA
- 13. Steinþór Már Auðunsson (m)
- 2. Birgir Baldvinsson
- 6. André Rømer
- 7. Adam Ægir Pálsson
- 8. Jeppe Pedersen
- 10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
- 21. Mikael Breki Þórðarson
- 23. Markús Máni Pétursson
- 28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
- 29. Jakob Snær Árnason
- 30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
Byrjunarlið ÍBV
- 33. Ari i Haraldstovu Petersen (m)
- 2. Sigurður Arnar Magnússon
- 4. Mattias Edeland
- 17. Emil Gautason
- 22. Eiður Atli Rúnarsson
- 23. Arnór Ingi Kristinsson
- 25. Alex Freyr Hilmarsson (f)
- 27. Róbert Elís Hlynsson
- 28. Heiðmar Þór Magnússon
- 30. Vicente Rafael Valor Martínez
- 67. Omar Sowe