24.10.26 - 14:56
Brynjar Ingi Erluson
Hálfleikur í Bestu: Tryllt spenna og markaflóð - KA á leið niður

Þórsarar eru yfir gegn FH og eru því uppi eins og staðan er núna

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Birnir Snær og félagar í Stjörnunni eru 5-0 yfir gegn Val en þeir þurfa að vinna með sex til að vinn Forsetabikarinn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórsarar eru yfir gegn FH og eru því uppi eins og staðan er núna

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Það eru ótrúlegir hlutir að gerast í lokaumferð Bestu deildar karla, en eins og staðan er akkúrat núna er KA á leið niður.
Öll augu eru á leikjum Þórs og KA þar sem mikil spenna er í fallbaráttunni.
Þórsarar eru 2-1 yfir gegn FH í Laugardalnum. Þeir lentu undir snemma leiks en Þorri Ingólfsson sneri leiknum við með tveimur mörkum fyrir Þór.
Þá kom upp umdeilt atvik síðar í fyrri hálfleik þegar Þorri féll innan vítateigs, en dómarinn lét leikinn halda áfram. Það er því mikil spenna í Laugardalnum.
KA-menn eru hins vegar á leið niður eins og staðan er núna, þrátt fyrir að vera 3-1 yfir gegn ÍBV. Jakob Snær Árnason, Mikael Breki Þórðarson og Hallgrímur Mar Steingrímsson hafa skorað mörk KA, en liðið þarf nú að treysta á að FH taki stig af Þór til að halda sæti sínu í deildinni.
Á sama tíma eru Stjörnumenn að nálgast hið ótrúlega í baráttunni um Forsetabikarinn. Liðið er 5-0 yfir gegn Val, en fyrir leikinn var ljóst að Stjarnan þyrfti að vinna með að minnsta kosti sex marka mun til að hafa betur gegn Val í baráttunni um titilinn.
Birnir Snær Ingason hefur skorað tvö mörk og þeir Guðmund Baldvin Nökkvason, Örvar Eggertsson og Jóhann Árni Gunnarsson hafa allir komist á blað.
Stjörnuna vantar því aðeins eitt mark til viðbótar til að ná því sem virtist afar ólíklegt fyrir leik.
Tekst Stjörnumönnum hið ótrúlega?
Hálfleikur:
Efri hlutinn:
ÍA 3 - 2 Keflavík
1-0 Markús Páll Ellertsson ('11 )
1-1 Alpha Conteh ('17 )
2-1 Gísli Laxdal Unnarsson ('22 )
3-1 Styrmir Jóhann Ellertsson ('38 )
3-2 Eiður Orri Ragnarsson ('45 )
Lestu um leikinn
KR 4 - 2 Breiðablik
1-0 Aron Sigurðarson ('11 )
1-1 Þorleifur Úlfarsson ('25 )
2-1 Sigurður Breki Kárason ('27 )
3-1 Sigurður Breki Kárason ('29 )
3-2 Sigurður Breki Kárason ('37 , sjálfsmark)
4-2 Galdur Guðmundsson ('39 )
Lestu um leikinn
Neðri hlutinn:
FH 1 - 2 Þór
1-0 Adolf Daði Birgisson ('7 )
1-1 Þorri Ingólfsson ('17 )
1-2 Þorri Ingólfsson ('19 )
Lestu um leikinn
KA 3 - 1 ÍBV
1-0 Jakob Snær Árnason ('3 )
1-1 Heiðmar Þór Magnússon ('17 )
2-1 Mikael Breki Þórðarson ('38 )
3-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('45 )
Lestu um leikinn
Stjarnan 5 - 0 Valur
1-0 Guðmundur Baldvin Nökkvason ('14 )
2-0 Birnir Snær Ingason ('21 )
3-0 Birnir Snær Ingason ('35 )
4-0 Örvar Eggertsson ('38 )
5-0 Jóhann Árni Gunnarsson ('43 )